Ístrubelgir og drykkjurútar á vinnumarkaði

Ekki lýgur Mogginn og nú hefur hann staðfest það á forsíðunni í dag, með viðtali við heilsuhagfræðing, (en það þykir mér merkilegt orð og fjarskalega hagsældarlegt), að auðveldara sé fyrir drykkjurúta að fá vinnu, heldur en fyrir holdugar konur.

Það kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart, að drykkjusjúklingar geti fengið vinnu og tollað í henni; það er hluti af leikarahæfni þeirra.  En satt best að segja, skil ég þetta ekki alveg með  þybbnu konurnar.  Er eitthvað verra, að afgreiðslukona í fataverslun sé þéttholda?  Og ef maður nú þarf að leita læknis; sakar það að hann reynist digur kona?  Er ef til vill skárra, að í hvíta sloppnum leynist timbraður karlmaður? 

Spyr sá, sem ekki veit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband