17.8.2009 | 23:04
Mælanleg hamingja
Jæja, þá hefur Lýðheilsustofnun slegið máli á hamingju landans í kreppunni. Forstjóri stofnunarinnar kom í Kastljós í kvöld, sælleg kona og áköf í sínum fræðum". Kynnti hún niðurstöðu hamingjumælinganna, sem reyndist vera 7,8 af 10 mögulegum, eins og í barnaskólum. Ekki var þess þó getið, hvort Lýðheilsustofnun hafði mælt hamingjuna í lengdarmetrum, þyngd eða ummáli.
Ég þekkti eitt sinn mann, sem taldi sig hafa farið á snið við hamingjuna í lífinu. Hann átti það til, að skvetta í sig, sem kallað er. Og það var segin saga, að á ákveðnu stigi drykkjunnar, horfði hann dreymnum augum fram fyrir sig, eins og hann sæi engil af himnum sendan, sér til upplyftingar og sagði: "Ég vildi að ég ætti, þó ekki væri nema hálft kíló af hamingju". Það brást ekki , að skömmu síðar seig glashöndin niður eftir stólnum og vinurinn hélt sína leið inn í draumalöndin.
Þessi öðlingur átti sína drauma eins og allir aðrir. En skynsemin forðaði honum frá því, að tala um hamingjuna sem mælanlega einingu, fyrr en á lokastigi langrar og strangrar drykkju. Hann var túramaður.
Flokkur: Menntun og skóli | Facebook
Athugasemdir
Þeir hljóta þá að skvetta laglega í sig á Lýðheilsustofnun.
Þorsteinn Briem, 18.8.2009 kl. 13:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.