Ráðherrar, þekkið hlutverk ykkar!

Enda þótt það megi vera lýðum ljóst, að fulltrúi hins raunverulega valds á Íslandi heiti Franek Rozwadowski og sé landstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á landi hér, á víst svo að heita, að hér starfi almannafulltrúar, sumir þingmenn, aðrir ráðherrar, nema hvoru tveggja sé.

Því miður virðist svo, sem ríkisstjórn Íslands geri sér ekki alveg ljóst, að hún starfar, þrátt fyrir allt, í umboði þjóðarinnar.  Þetta skilningsleysi ráðherranna á stöðu sinni og hlutverki, lýsir sér í því, að þeir telja sig þess umkomna, að fjalla um helstu hagsmunamál þjóðarinnar í véfréttastíl.  Þannig hefur hinn marg umræddi klakabjörgunarsamningur (Icesavesamningur) verið sveipaður dulúð, rétt eins og það sé einkamál ráðherra, um hvað "samningur" þessi fjalli.

Samningur - nauðung; látum það liggja milli hluta.  En vilji ráðherrar Íslands svo mikið sem látast vera eitthvað annað en knékrjúpandi beiningarmenn, er það minnsta, sem þeir geta gert, að upplýsa þjóðina undanbragðalaust um klakbjörgunarsamninginn.  Þjóðin á rétt á því að vita, hvaða verði bankagjafastefna frjálshyggjunnar skal goldin. 

Það er hægt að lúta lágt, án þess að kinkna.  En sá einn fær risið upp úr eymd sinni, sem þekkir þann svörð, er fætur hans nema.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Vel orðuð ádrepa hjá þér Pjetur.

Já og þörf hugvekja.

Sigurður Þórðarson, 31.7.2009 kl. 06:23

2 Smámynd: Agla

Sammála því að ríkisstjórnin hefur ekki sýnt okkur þá virðingu að "upplýsa" okkur á mannamáli um hver staðan raunverulega er.

Agla, 31.7.2009 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband