7.7.2012 | 20:16
Ný bók, Ljóðasafn og sagna 1972 - 2012
Tíminn lætur ekki að sér hæða. Og nú eru fjórir áratugir frá því ég sté fram á þennan marg umtalaða ritvöll, hvern ég raunar hef aldrei augum litið. Já, og verð víst sextugur í sumar, ef Guð lofar, eins og gamla fólkið segir.
En hvað um það; í tilefni ársins er komin út bók með úrvali ljóða minna, frumortum og þýddum og smásagnaúrvali að auki. Ljóðasafn og sagna 1972 - 2012 heitir ritið. Bókaútgáfan Skrudda gefur út.
Á morgun fer ég til Vestmannaeyja, þar sem ég er fæddur. Þar mun ég lesa upp úr bókinni á Goslokahátíðinni, nánar tiltekið í bókasafninu. Hlakka til að sjá sem flesta.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.