Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
28.9.2010 | 22:51
Aumingja Samfylkingin
Ekki hækkaði nú risið á Alþingi í dag. Og Samfylkingin, ja það er nú söfnuður í sérflokki og honum miður góðum. Að fjórir þingmenn flokksins, skuli hafa geð í sér, til að kjósa með málshöfðun gegn Geir Haarde fyrrum forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, en greiða um leið atkvæði á móti málshöfðun gegn flokkssystur sinni, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrum utanríkisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, er hrein lítilmennska.
Ástæða er til að halda nöfnum þessa fólks til haga, en þau eru; Helgi Hjörvar, Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Skúli Helgason.
Auðvitað ber Geir Haarde vissa ábyrgð á fumkenndum viðbrögðum við hruninu 2008. Og það er aumkunarvert, að hlusta á hann halda því fram, að það hafi komið honum og öllum öðrum í opna skjöldu. Viðvaranir höfðu borist, en á þær var ekki hlustað. En það var ekki aðeins Geir Haarde, sem skellti skollaeyrum; það gerði Ingibjörg Sólrún ekki síður.
Ég held ekki, að þetta fólk hafi viljað vinna þjóð sinni mein. Og ég ætla ekki, að fullyrða, að það hafi sýnt af sér vítaverða vanrækslu í starfi, í skilningi laga. Hitt fullyrði ég, að sé til lagaleg ábyrgð á hruninu og afleiðingum þess, þá eiga allir gömlu stjórnmálaflokkarnir það nokkra sök, einnig Vinstri grænir. Það vill nefnilega svo til, að fulltrúar þeirra í stjórnum lífeyrissjóða tóku fullan þátt í dansinum í kringum gullkálfinn.
Hinu skal og haldið til haga varðandi Geir Haarde og meinta sök hans, að hann tók við þeim arfi frá Davíð Oddssyni, sem ekki gat endað öðru vísi en með ósköpum. Og því má þjóðin ekki gleyma, að stór hluti hennar, ef til vill meirihlutinn tók þátt í darraðardansinum. Hefði verið hægt, að teyma Íslendinga jafn langt á asnaeyrunum og raun ber vitni, nema vegna þess, hversu ótrúlega löng þau eru?
27.9.2010 | 22:10
Fjölgum kostum í húsnæðismálum
Í Kastljósi í kvöld, lýsti umboðsmaður skuldara þeirri skoðun sinni, að hugsanlega væri tímabært, að endurvekja verkamannabústaðina. Þetta eru orð í tíma töluð. Séreignastefnan í húsnæðismálum hefur runnið sitt skeið á enda.
Það er löngu tímabært, að fólki sé gert kleift, að búa í öruggu húsnæði utan við séreignastefnuna. Verkamannabústaðir eru ein aðferð, til að svo megi verða. Önnur fær leið í þessu sambandi eru byggingasamvinnufélög og loks má nefna opinber lán til verktaka, gegn því að þeir leigi út íbúðir á hagstæðum kjörum.
Í raun má segja, að núverandi húsnæðiskerfi geri hvort sem er alla að leigendum. Spurningin er bara, hvort menn leigi húsnæði beint eða leigi peninga hjá lánastofnunum, til að geta talist eigendur íbúðahúsnæðis að nafninu til.
Auðvitað eiga menn að geta átt sitt húsnæði, hafi þeir efni á því og standi vilji þeirra til þess. En það er fráleitt, að séreignastefnan sé eini valkosturinn í húsnæðismálum.
22.9.2010 | 11:50
Návígi - óvandaður sjónvarpsþáttur
Í gærkvöldi hóf göngu sína nýr þáttur hjá Ríkissjónvarpinu. Návígi" kallast hann. Þátturinn er undir stjórn Þórhalls Gunnarssonar, sem mér skilst að sé leikari. Virðist mér hann vera einn af þessum dæmigerðu 2007-stjörnuglópum" fjölmiðlanna.
Viðmælandi Þórhalls í þessum þætti var séra Halldór Gunnarsson í Holti. Ræddi hann fyrst og fremst málefni Ólafs Skúlasonar biskups og stöðu kirkjunnar í því samhengi. Þá fjallaði hann lítillega um mútuþingmennina innan Sjálfstæðisflokksins, en sem kunnugt er, krafðist hann þess á síðasta landsfundi flokksins, að þeir segðu af sér. Nóg um það.
Séra Halldór kom fram af mikilli einlægni og var þó, sem kristinn maður og þjónn kirkjunnar, að ræða mál, sem gengur honum nærri. En leikarinn í stöðu þáttarstjóra skildi ekki einlægni viðmælanda síns; hún féll einfaldlega ekki að sviðshugmyndum hans. Og hann tók að tala yfir hausamótunum á klerki, eins og sá væri óprúttinn stjórnmálamaður, sem væri að koma sér undan sannleikanum.
Umræddum sjónvarpsþætti virðist ætlað að varpa ljós á málefni líðandi stundar. Slíkir þættir eiga að vera í höndum vandaðra fréttamanna en ekki leikara. Leikarar eiga að halda sig á leiksviðinu, þar eiga þeir heima. Síst af öllu eiga þeir að gera samfélagsumræðuna að leiksviði sínu í fjölmiðlum, nema sá sé beinlínis tilgangur þeirra.
Þórhallur Gunnarsson gæti margt lært af sjónvarpsstöðvum hinna Norðurlandanna og Spaugstofunni. Að því loknu gæti hann valið á milli þessara tveggja ólíku forma þjóðfélagsrýninnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2010 | 12:38
Margt má læra af Steini Steinarr
Umræður stjórnmálamanna um Landsdóm minna mig óneitanlega á kvæðið Að sigra heiminn" eftir Stein Steinarr. Læt það fljóta hér með til gamans og fróðleiks.
Að sigra heiminn
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði):
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það var nefnilega vitlaust gefið.
15.9.2010 | 22:07
Óheilindi borgarstjóra
Kynþáttafordómar eru grafalvarlegt mál, sem allir ættu að sameinast gegn. Þegar ofbeldismenn ráðast á heimili fólks og hóta því limlestingum, vegna hörundslitar þess og það með slíku gerræði, að fórnarlömbin flýja land, þá er runnin upp stund almennrar samstöðu, til varnar þeim, sem fyrir slíkum hrottaskap verða.
Nú hefur þetta gerst í Reykjavík og því miður ekki í fyrsta sinn. Og hvað gerist þá? Efna hinar ýmsu kirkjudeildir til almennrar göngu gegn kynþáttafordómum? Koma stjórnmálaflokkarnir, námsmannafélög, verkalðýðshreyfingin, félög jafnréttissinna o.s.frv., o.s.frv. að slíkum aðgerðum?
Nei, það heyrist hvorki hósti né stunda frá þessum aðilum. Hins vegar grípur borgarstjóri gæsina og boðar til göngu Besta flokksins" n.k. laugardag, rétt eins og það sé flokkspólitíkst mál, að fá að búa í þessu landi, þótt maður sé dulítið dekkri á húðina en við náfölir norðannepjumenn langt aftur í aldir.
Þetta er ómerkileg sjálfsupphafning hjá borgarstjóra og flokki hans. Og það verður að segjast eins og er, að hún lýðst í skjóli þeirrar andlegu deyfðar, sem einkennir Íslendinga.
14.9.2010 | 17:24
Þingmannaskýrslan III
Jóhanna Sigurðardóttir telur bankamenn bera megin ábyrgð á hruninu 2008. Má til sanns vegar færa. En hvors er ábyrgðin þyngri, villidýrsins eða sirkusfíflsins, sem sleppir því lausu?
13.9.2010 | 16:21
Þingmannaskýrslan II
Viðbrögð sumra stjórnmálamanna við þingmannaskýrslunni eru aumkunarverð. Látum nú vera þó Sjálfstæðismenn slái skjaldborg um sína menn; það telst ekki til tíðinda. En að Margrét Frímannsdóttir fyrrum talsmaður Samfylkingarinnar skuli koma fram í sjónvaprsfréttum, einkum og sér í lagi til að verja vinkonu sína Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, það lýsir ekki mikilli stórmennsku. Og hvernig datt fréttamönnum Ríkisútvarpsins í hug, að hafa samband við hana vegna þessa máls? Skyldi hún sjálf hafa slegið á þráðinn til þeirra?
12.9.2010 | 11:03
Þingmannaskýrslan I
Því miður bendir flest til þess, að einkavæðing bankanna hafi í raun verið rán á þjóðareignum, með hagsmuni einstakra auðmanna í huga. Sé þetta rétt, var ekki um eðlileg viðskipti að ræða, heldur hreina glæpastarfsemi þeirra stjórnmálaflokka, sem þar áttu hlut að máli. Hér er um að ræða Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn.
Nú hefur komið í ljós, að fulltrúar þessarar flokka í þingmannanefndinni, komu í veg fyrir, að hún skilaði áliti varðandi bankasöluna", sem reynslan sýndi, að var í raun gjöf ríkisins á bönkunum. Þar er engrar rannsóknar þörf, að mati Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna.
Hvers vegna? Svari hver fyrir sig.
25.8.2010 | 22:10
Til hamingju með daginn Þingeyingar
Í dag eru 40 ár liðin frá því, að Þingeyingar og þá einkum Mývetningar, sprengdu virkjunarstíflu í Laxárvirkjunar í Miðkvísl, eftir að hafa ítrekað en árangurslaust reynt að koma vitinu fyrir virkjunaróð yfirvöld. 25. ágúst er því merkisdagur, ekki aðeins í sögu náttúruverndar, heldur einnig lýðræðis á Íslandi.
Þegar yfirvöld hlusta ekki á fólk, er ekki annað til ráða, en að hækka róminn. Þetta gerðu Þingeyingar svo lengi verður í minnum haft. Vonandi er ekki svo úr þeim allur móður, nú 40 árum síðar, að þeir láti það um sig spyrjast, að þeir knékrjúpandi væli út álver við Húsavík.
22.8.2010 | 16:30
Misbeiting stjórnmálaflokka á embættisveitingum og öðrum mannaráðningum
Í spjalli mínu í gær varpaði ég fram þeirri spurningu, hvort stjórnmálaflokkarnir væri ekki elstu, þróuðustu og best skipulögðu glæpasamtök landsins". Tilefnið er sú hugmynd dómsmálaráðherra, að veita lögreglu heimild til að rannsaka feril fólks, án þess að nokkur grunur hafi á það fallið og fela stjórnmálaflokkunum eftirlit með slíkri njósnastarfsemi í gegnum Alþingi.
Það er ekki ætlun mín, að svara þessari spurningu. Hins vegar ætla ég að varpa fram nokkrum atriðum, sem fólk getur velt fyrir sér í þessu sambandi. Er þá eðlilegt, að byrja á embættisveitingum og öðrum mannaráðningum, sem stjórnmálaflokkar stýra í gegnum ríkisvaldið og vald sveitafélaga.
Eðlilegur tilgangur slíkra mannaráðninga hlýtur að vera sá, að efla hag almennings, með beitingu þess stjórnvalds, sem í hlut á. Er sú raunin? Þeirri spurningu treysti ég mér til að svara neitandi.
Mér skilst að Alþýðuflokkurinn, helsti forveri Samfylkingarinnar, hafi beinlínis haft það í lögum sínum, að veita bæri flokksmönnum þær opinberu stöður, sem flokkurinn hefði yfirráð yfir. Hjá öðrum flokkum hefur þetta, mér vitanlega ekki verið fest á blað, en sömu stefnu fylgt út í æsar. Pukurslaust hafa flokkarnir tekið flokksskírteini fram yfir hæfileika, þegar um opinberar mannaráðningar hefur verið að ræða. Þetta á við um þá alla. Svo rammt hefur að þessu kveðið, að það vakti furðu manna, á árum vinstri stjórnarinnar 1971 til 1974, að Magnús Torfi Ólafsson menntamálaráðherra skyldi yfirleitt ekki fylgja þessari stefnu. Hann tók sem sagt hag ríkisins og þar með almennings, fram yfir hagsmuni flokksins.
Mín vegna mega menn deila um það, hvort augljós misbeiting stjórnmálaflokka á veitingarvaldi embætta og annarra starfa flokkist undir glæpastarfsemi. Hinu verður ekki neitað, að þetta háttarleg hefur mjög dregið úr tiltrú almennings á flokkunum og þar með þeim stofnunum, sem þeir stýra, þ.á.m. Alþingi og ríkisstjórn. Svo langt hefur þetta vantraust gegnið, að í valdatíð Davíðs Oddssonar,varð meira að segja Hæstiréttur að gjalda þessa almenna vantrausts. Og það sem verra er; þetta hefur aukið vald þeirra, sem stýra stjórnmálaflokkunum hverju sinni, á kostnað almannahagsmuna.
Skipulögð glæpastarfsemi? Svari hver fyrir sig.