Jöfnun skatts af launum og fjármagnstekjum

Ég verð að játa, að ég hef ekki orðið mér úti um fjárlagafrumvarpið.  En mikið líst mér vel á þær fréttir, að til standi, að draga verulega úr þeim mun, sem verið hefur á tekjuskatti, eftir því hvort um er að ræða launatekjur eða fjármagnstekjur.

Vitanlega ber ekki að ganga að takmörkuðum sparnaði fólks.  En það er glórulaust rugl, sem viðgengist hefur allt of lengi, að jafnvel fólk, sem lifir á fjármagnstekjum greiði aðeins 10% tekjskatt af vöxtum þess fjármagns, meðan launafólk greiðir hátt í 40% launa sinna í skatta, að persónufrádrætti slepptum.

Grundvallarreglan hlýtur að vera sú, að sem jafnastir skattar séu lagðir á tekjur, hvernig sem þeirra er aflað. Þó geta legið viss rök að því, að skattar af fjármagnstekjum, séu svo sem 5% til 10% lægri en almennir tekjuskattar og skattleysirmörkum af lágum fjármagnstekjum, verði fundinn sérstakur farvegur.

Rökin fyrir óverulegum sköttum af fjármagnstekjum voru m.a. þau, að fólk mundi þá ekki aðeins spara peninga, heldur auka þjóðarhag, með því að leggja þá í hlutabréf í fyrirtækjum, sem sköpuðu arð og atvinnu.  Þetta hljómaði mjög gáfulega samkvæmt kokkabókum frjálshyggjunnar.  Þær skruddur lentu sem kunnugt er á funheitu grilli Hannesar Hólmsteins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Þór Strand

Hvernig finnst þér sú staðreynd að vegna þess að fjármangstekjuskattur er reiknaður af verðbótum og vöxtum þá má segja að raunvextir hérna séu 1,75% hærri en þeir þurfa að vera.  Það er nú bara þannig að ráðamenn landsins þjást af verulegum greindarskorti og eru algjörlega vanhæfir í starfi.

Einar Þór Strand, 2.10.2009 kl. 11:36

2 Smámynd: Landfari

Vextir af fjármagnstekjum eru sennilega nú þegar orðnir álíka og af öðrum tekjum og í smum tilfellum hærri.

Ef  þú átt sparnað í banka, sem þú nota bene ert þegar búinn að greiða fulla skatta af þegar þú aflaðir hans, sem er að bera 5-10 % vexti í 10-15 % verðbólgu ertu beinlínis að tapa allt að 10 % af sparnaðinum árlega. Ofan á það þarftu síðan að greiða 15 % skatt á hluta af tapinu. Til að kóróna svo málið þurfa eldri borgarar og örorkuþegar að þola skerðingu á sínum tekjum frá ríkinu vegna þess að þeir fá hluta af verðrýrnun krónunnar bættan í formi vaxta.

Landfari, 2.10.2009 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband