Bensínsletta á samviskuna

Fyrrverandi olíufursti mætti í Kastljós í gær og var sakleysið uppmálað.  Þó glitruðu á enni olíuperlur, sem samviskan virtist þrýsta út um svitaholurnar.  En eins og maðurinn sagði sjálfur, þó ekki orðrétt, er hann sakleysið uppmálað, nema þá í nokkrum untantekningartilfellum.  En þar var bara um að ræða smávægileg mistök, sem olíufurstunum láðist að ræða í góðu tómi.

Ó, þið glitrandi frelsins tímar!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Já háll á svellinu sagði hann, svo segist hann sekur en að fólkið í landinu hafi ekki tapað á því. Undarlegt.

Tómas Þóroddsson, 21.3.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: Kristján Pétursson

Kristinn hefði betur ekki mætt í þennan þátt.Hann var nú ekki hátt skrifaður fyrir,en nú getur hver og einn sett hann á þann stað sem honum ber.Ég held að betra hefði verið fyrir olíuforstjórana að vera dæmdir af verkum sínum,en þurfa að ganga um sem huldumenn.

Kristján Pétursson, 21.3.2007 kl. 18:00

3 identicon

Það var pínlegt að horfa á sveittan og flóttalegan manninn afsaka sig.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband