26.11.2011 | 17:40
Sigurður dýralæknir
Mikið fjandi var gaman á Sunnlenska bókakaffinu í gær, þar sem kvæðamaðurinn og lífskúnstnerinn Sigurður Sigurðarson dýralæknir kynnti fyrra bindi endurminninga sinna og fór með stemmur í leiðinni í kompaníi með konu sinni Ólöfu Erlu Halldórsdóttur. Hygg ég, án allrar illkvittni, að við Sigurður getum verið sammála um, að þar fari hans betri helmingur.
Í nokkrum stemmum komu fleiri til leiks, þar á meðal húsbóndinn á bókakaffinu, skrollarinn Bjarni Harðarson, sem sló hinn rétta tón, merkilegt nok.
Nú jæja, ég er byrjaður að glugga í bókina þá arna. Og víst er Sigurður sagnamaður góður. En þá er ósvarað þeirri spurningu, hvað geri menn að góðum sagnamönnum. Svarið er að finna í þessari bók; það er græskulaust gaman, sem varpar ljósi, jafnt á léttleika sem alvöru lífsins. Slík kallast í senn falsleysi og mennska.
Hafi Sigurður bestu þakkir fyrir upplífgandi lesningu.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.