25.6.2010 | 16:10
"Hveragerði er heimsins besti staður."
Þessa helgina fer fram sannkölluð blómahátíð í Hveragerði, undir heitinu "Blóm í bæ". Og það eru orð að sönnu. Bærinn er bólmum skrýddur og mikið um að vera. Vestan við barnaskólann er stórt sölutjald með handverksmunum af ýmsu tagi, en norðan skólans hefur verið sett um lítið tívolí.
Á myndinni hér að ofan, sést hverngi gamli barnaskólinn hefur verið prýddur blómum.
Við höldum okkur enn við gamla barnaskólann. Norðan við húsið eru sígild ævintýri í blómskreyttri mynd. Hér gefur að líta Rauðhettu og úlfinn.
Ef þið stækkið þessa mynd (með því að tvíklikka á hana) og athugið skreytinguna á svölunum, sjáið þið prinsessuna á bauninni, þ.e.a.s þá þekktustu þeirra.
Hún sést betur á þessari mynd. Kannast einhver við svipinn?
Hér má sjá dvergana sjö. Mjallhvít hvílir í kistunni. Er enginn prins í Hveragerði?
Torgið í Hveragerði; samspil blóma og blaðra.
Handverksfólk úr Hveragerði í óðaönn við að koma upp sölubásum í tjaldinu vestan við barnaskólann.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:00 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.